Milton Keynes Dons FC
Enska knattspyrnuliðið Milton Keynes Dons FC er statt hér á landi í boði knattspyrnudeildar Hauka. Milton Keynes Dons FC hét áður Wimbledon. Lið Wimbledon lagði stórlið Liverpool að velli í sögufrægum leik keppnistímabilið 1987-88 og hampaði þar með Enska bikarnum. Lið Milton Keynes Dons FC er statt hér á landi í æfingabúðum til undirbúnings fyrir keppnistímabilið. Milton Keynes kemur til með að spila þrjá leiki í ferðinni og sá fyrsti verður í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti liðinu og hefst leikurinn á Stjörnuvellinum í Garðabæ klukkan 20.
Á miðvikudag mætir enska liðið Haukunum á Ásvöllum og á föstudag spilar Hafnarfjarðarúrval styrkt af liðsmönnum Breiðabliks gegn Milton Keynes.
