Mfl. kk. og kvenna spila i bikarnum á morgun, þriðjudag

Haukar

 Borgunarbikar hjá mfl. karla og kvenna og breytingar á leikjum í 1. deild karla

 

Á morgun þriðjudag kl. 18:00 heimsækja Haukar ÍBV í 32. liða úrslitum Borgunarbikarsins. Bæði lið hafa spilað undir væntingum í sínum deildum og allveg ljóst að það verður hart barist. Haukar eiga harma að hefna frá úrslitakeppni í handboltanum og því tilvalið að leggja eyjamenn og komast um leið í 16 liða úrslitin.

 

Tveir leikir í 1. deild karla hafa verið færðir , leikur Leiknis R. og Hauka sem á að vera 31.maí færist til 5. júní (kl.20:00) og leikur Hauka við BI/Bolungarvík sem á að vera 7. júní færist til 9. júní. (kl. 14:00)  

Kvennaliðið spilar svo við Álftanes á Bessastaðarvelli kl. 19:30. Haukarnir sitja á toppi A riðils 1. deildar en lið Álftanes er í þriðja sæti B riðils og má því búast við hörku viðureign.