Mót í Fífunni á sunnudaginn hjá 6. flokki karla

Sunnudaginn 7. maí verður mót í Fífunni í Kópavogi. Þar munum við etja kappi við lið HK, Breiðabliks og FH. Allir eiga að mæta stundvíslega klukkan 7:30. Þátttökugjald er 500 krónur. Skipt verður í lið á staðnum. Stefnt er að því að byrja strax klukkan 8:00. Hver leikur verður í 16 mínútur og eru 4 mínútur á milli leikja til að stilla upp á völlinn nýjum liðum og byrja á næsta leik. Mótið verður búið klukkan 11. Pizzur verða handa öllum þátttakendum eftir mót. Einnig verða seldar léttar veitingar á vægu verði á staðnum á meðan á mótinu stendur.

Áfram Haukar!!! Þjálfari og foreldrastjórn