Leikur III um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar – Valur þriðjudaginn 24. apríl kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Þriðji leikur Hauka 0g Vals um Íslandsmeistaratitilinn verður þriðjudaginn 24. apríl kl. 19:15

Staðan er 1-1 í einvíginu og hafa báðir leikir unnist á heimavelli. Haukaliðið náði ekki að sýna sitt rétta andlit í Valsheimilinu síðastliðinn laugardag en voru samt nálægt að ná að stela sigrinum i lokin. Leikmenn gerðu of mikið af mistökum og tapaðir boltar voru allt of margir.
Nú þurfa leikmenn að koma vel stemmdir til leiks og sýna að þær séu með betra lið. Koma ákveðnar til leiks og vinna frákastabaráttuna.

Við hvetjum Hafnfirðinga og Haukafólk til að fjölmenna á völlinn og styðja vel við bakið á þessum flottu liðum sem eru að spila til úrslita.

Fylkjum liði og tryggjum bikarinn í fjörðinn.