Körfuknattleiksdeild Hauka og Gámaþjónustan gera með sér samstarfssamning

Körfuknattleiksdeild Hauka og Gámaþjónustan hafa gert með sér samstarfssamning um að Gámaþjónustan muni verða einn af aðal stuðningsaðilum deildarinnar.

Samningurinn var undirritaður í dag af Jónasi Jónmundssyni formanni KKD Hauka og Gunnari Bragasyni framkvæmdastjóra Gámaþjónustunnar.
Samningurinn færir deildinni mikilvægan stuðning við barna og unglingastarfið ásamt því að styðja við meistaraflokka deildarinnar með myndarlegum hætti.

Við hjá körfuknattleiksdeild Hauka erum afar þakklát fyrir þetta framlag Gámaþjónustunnar og bjóðum þá velkomna í Haukafjölskylduna.