Leikdagur – Rúmlega 1000 miðar seldir

Pétur Örn kemur inn í hópinn í stað Þórhalls DanÍ dag er dagurinn segja margir, í dag er leikur leikjanna segja ennþá fleiri. Veðrið getur ekki verið mikið betra á þessum degi okkar Hafnfirðinga. Haukar og FH eru að fara eigast við í fyrsta sinn í efstu deild í knattspyrnu í 36 ár og það þarf ekkert að útskýra það neitt fyrir einum né neinum, hversu mikið er undir í þessum leik.

Leikið er á Vodafone-vellinum við Hlíðarenda og er þegar búið að selja rúmlega 1000 miða en forsala er enn í fullum gangi, bæði á Ásvöllum sem og á Vodafone-vellinum sjálfum. Völlurinn tekur 1201 áhorfendur í sæti en töluvert fleiri geta þó mætt, enda verða stæði í kringum allan völlinn.

 

Stuðningsmenn Hauka ætla að mæta upp á Ásvelli klukkan 17:00 í dag og hita þar upp rækilega en Bjössabar verður opinn enda ástæða til. Rútur verða svo mættar upp á Ásvelli 18:30 og verður ferjað fólkið upp á Vodafone-völl um korteri síðar. Það verða einnig rútuferðir heim eftir leik.

 

Hópurinn hjá Haukum er eftirfarandi: (Skrifað eftir stafrófsröð)

Arnar Bergmann Gunnlaugsson
Amir Mehica
Daði Lárusson
Daníel Einarsson
Guðjón Pétur Lýðsson
Guðmundur Viðar Mete
Gunnar Ormslev Ásgeirsson
Hilmar Geir Eiðsson
Hilmar Rafn Emilsson
Hilmar Trausti Arnarsson
Ísak Örn Einarsson
Jónmundur Grétarsson
Kristján Óli Sigurðsson
Kristján Ómar Björnsson
Pétur Ásbjörn Sæmundsson
Pétur Örn Gíslason
Sam Mantom
Úlfar Hrafn Pálsson

Semsagt ein breyting frá síðasta leik, en Þórhallur Dan Jóhannsson verður ekki með vegna meiðsla og kemur Pétur Örn Gíslason inn í hópinn í hans stað. 

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…