Janine Guijt til liðs við Hauka

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur náð samningi við hollenska bakvörðinn Janine Guijt. Janine hefur leikið upp öll yngri landslið Hollands og var nýlega valin í A landsliðið ásamt því að vera í landsliði Hollands í 3 á 3 keppni FIBA.

Hún er væntanleg til landsins á milli jóla og nýárs og verður orðin lögleg með Haukum strax eftir áramótin.

Við bjóðum hana velkomna til liðsins og ekki skemmir að gamlárskvöld verður ein hennar fyrsta minning af Íslandi.