Jólamótsmeistarar

Í dag keppti 7. flokkur karla á Jólamótinu í Kópavogi.
D-liðið náði frábærum árangri og sigraði með glæsibrag. Töpuðu ekki neinum leik.
C-liðið náði sér ekki á strik og lenti í 7 sæti en bættu það svo sannarlega upp þegar sömu strákar náðu þriðja sæti í keppni B-liða.
A-liðið náði svo í fimmta sæti eftir að hafa unnið FH í leik um fimmta til sjötta sæti.

Allir strákarnir stóðu sig vel og voru félaginu til mikils sóma.

kv. Óli

p.s. Myndin er af jólamótsmeisturunum í í D-liðinu.