Hreystinámskeið fyrir krakka fædda 1998 – 2000

HaukarVegna mikilla vinsælda á Hreystinámskeiðinu sem fór fram í júní síðast liðinn ætlum við að bæta við öðru námskeiði vikuna 8. – 12. ágúst. Námskeiðið er  fyrir krakka í 5 .- 7. bekk grunnskóla. Þetta verður hressilegt og skemmtilegt námskeið undir handleiðslu Huldu Sólveigar Jóhannesdóttur, íþróttakennari við Hvaleyrarskóla. Hulda hefur verið að þjálfa krakkana þar fyrir þátttöku í Hreystikeppni í vetur svo hún er öllu vön.
Farið verður í grunngreinar Hreystikeppninnar, æft þrek og þol og farið í vettvangsferðir. Hreystibrautin í Garðabæ verður heimsótt tvisvar sinnum á námskeiðinu, annað hvort hjólandi eða með strætó. Mikilvægt er að þátttakandi hafi hjól til umráða.
Námskeiðið verður dagana 8., 9., 10., 11., og 12. ágúst (samtals 5 dagar) frá kl. 12:00 – 15:00. Verðið pr. mann er kr. 6.000 og  innifalið í því er ávaxtastund og ferðir milli staða. Hámarksfjöldi á námskeiðið er 25.
Skráning á námskeiðið er hafin á heimasíðu félagsins, smellið HÉR. Við skráningu þarf að ganga frá greiðslu.

Kveðja Íþróttaskóli Hauka.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…