Hilmar Rafn Emilsson, framherji Hauka, er næst markahæstur í 2. deild karla eftir þrjár umferðir. Hann hefur skorað í hverri umferð og er kominn með 4 mörk.
Fyrrverandi Haukamaðurinn Magnús Ólafsson í ÍR er markahæstur með 5 mörk en hann skoraði þau öll gegn Sindra í 2. umferð. Sævar Þór Gíslason í Selfossi er með 3 mörk og þar af 1 víti.