Heldur stórt tap gegn Eyjamönnum

Hilmar Geir átti ágætisleik í dagEyjamenn fóru með 3-0 sigur af hólmi gegn Haukum í 4.umferð Pepsi-deild karla sem hófst í dag, en leikurinn fór fram á heimavelli okkar Haukamanna, á Vodafone-vellinum.

Eyjamenn skoruðu tvö fyrstu mörkin með stuttu millibili um miðbik fyrri hálfleiks og virtist sem allur vindur hafi farið úr Haukum eftir það. Eyjamenn bættu síðan við þriðja markinu í seinni hálfleik.

Liðið átti dapran leik í dag og á miklu meira inni en þeir hafa sýnt í sumar, nú er bara stóra spurningin, hvenær kemur fyrsti sigurinn í sumar? Kemur hann í næsta leik gegn Fjölni í bikarkeppninni?

 Umfjöllun og viðtöl eftir leikinn af öðrum fjölmiðlum:

Umfjöllun um leikinn, af Fótbolti.net

Viðtal við Daða Lárusson, af Fótbolti.net

Umfjöllun um leikinn, af Vísi.is

Viðtal við Hilmar Geir, af Vísi.is

Umfjöllun um leikinn, af MBL.is