Haukum er spáð 3.sætinu í sumar

HaukarStærsti knattspyrnuvefur landsins, Fótbolti.net hefur undanfarin ár staðið fyrir spá fyrir allar deildir Íslandsmótsins og er engin breyting á því þetta árið. Það eru þjálfarar og fyrirliðar liðanna í 1.deildinni sem spá fyrir um stöðu liðanna í deildinni. 

Á síðustu dögum hefur eitt lið verið tilkynnt á hverjum degi.  Í dag síðasta dag fyrir fyrsta leik var efstu þrjú liðin í spánni öll tilkynnt. Þar kom í ljós að þjálfarar og fyrirliðar í 1.deild karla spá Haukum 3.sætinu í deildinni. 

Fyrsti leikur Hauka í deildinni er á morgun, gegn Þrótti í Laugardalnum. Leikurinn verður flautaður á klukkn 14:00.

 Farið er í fljótu bragði í gegnum styrkleika og veikleika liðsins. Einnig eru þrír lykilleikmenn valdir og fleira.

,,Haukarnir eru með verulega öflugt lið. Styrkleiki þeirra liggur í mikilli breidd. Þeir eru sérstaklega vel mannaðir og með góða blöndu af heimamönnum og reyndum aðkomumönnum. Hafa styrkt sig vel,“ segir  Garðar Gunnar Ásgeirsson sérfræðingur Fótbolti.net um 1.deildina en hann hefur lengi fylgst með neðri deildum á Íslandi.  Hann telur að Haukanna vanti afgerandi sóknarmann í sínar raðir.

,,Þeim vantar einna helst afgerandi markaskorara. Eru með nokkra leikmenn sem hafa oft verið meiddir í gegnum tíðina.“ Hann telur síðan að Guðmundur Sævarsson, Hilmar Geir Eiðsson og Ásgeir Þór Ingólfsson verði lykilmenn í liði Hauka í sumar. 

Að segist hann vera spenntur að sjá hvort að Haukar standist pressuna. ,,Með miklum breytingum eru þeir búnir að setja aukna pressu á sig og krafan hlýtur að vera sett á úrvalsdeildarsæti,“ sagði Garðar Gunnar.  

Hægt er að sjá kynninguna á liði Hauka í heild sinni hér. 

 Við minnum á fyrsta leik Hauka í 1.deild karla á morgun. Þróttur R. – Haukar klukkan 14:00. Leikurinn fer fram á gervigrasvellinum í Laugardal.

Allir á völlinn – ÁFRAM HAUKAR!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…