Haukastelpur fá Stólana í heimsókn í kvöld

Kristján þjálfari verður vonandi brosandi í kvöldHaukar – Tindastóll í fyrstu deild kv. í kvöld kl. 20:00 á Schenkervellinum.

 Haukastelpurnar taka á móti Tindastól í kvöld. Haukarnir eru í fjórða sæti með þrjá sigra úr fimm leikjum. Stelpurnar geta með sigri klifið vel upp töfluna. 

Stelpurnar hafa tapað síðustu tveim leikjum eftir góða byrjun og því þurfa þær stuðning í kvöld til að komast aftur á sigurbraut.

Hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn og styðja vel við bakið á stelpunum.