Haukar – Víkingur R. 23.maí

Á morgun, 23.maí munu strákarnir taka á móti Víking Reykjavík á gervigrasinu á Ásvöllum.

Leikurinn hefst kl. 20:00 og hvetjum við auðvitað alla til að fjölmenna á leikinn.

Víkingar eru með 3 stig í deildinni eftir sigur gegn KA í síðustu umferð, en í fyrstu umferðinni töpuðu þeir gegn nýliðum Selfoss.

Okkar strákar eru aftur á móti enn taplausir, eftir að hafa gert jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum, fyrst gegn Víking Ólafsvík svo gegn Fjarðabyggð.

Við viljum svo hvetja Haukafólk að velja mann leiksins á meðan leik stendur og hvað þá að kíkja í hina geysivinsælu leikskrá .

Allir á völlinn – ÁFRAM HAUKAR!

Haukar – Víkingur R.

Klukkan 20:00

Ásvöllum

Á morgun, föstudag, 23.maí