Haukar – Tindastóll á föstudagskvöld á Ásvöllum

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  6.jpgHaukar leika við Tindastól á föstudag á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 20:00.

Haukaliðinu hefur gengið vel í undanförnum tveimur leikjum þegar liðið vann góða sigra á ÍR og Fjölni.  Fyrri leikurinn við Tindastól á Sauðárkróki vannst einnig sannfærandi eða 5-0. Það er samt ekkert gefið í fótboltanum eins og margoft hefur komið í ljós og óvænt úrslit hafa orðið.

Í spjalli við haukar.is í kvöld sagði Heimir Porca þjálfari um leikinn að nú væri nýr leikur og 3 stig í boði fyrir sigur. Allir leikmenn verði að leggja sig fram og vera einbeittir til að ná sigri. Leikmenn Tindastóls hafi sýnt í undanförnum leikjum að þeir hafa baráttuna í lagi.

Þá sagði Heimir að nýr leikmaður væri kominn til Hauka, Dagbjört Agnarsdóttir sem væri hörkudugleg stúlka og fyrrverandi leikmaður Hauka.  Hann sagði mikilvægt að fá hana inn í hópinn þar sem Björg Magnea Ólafs færi út til náms í lok júlí en síðasti leikur hennar verði við Fram þann 27. júlí nk. 

Haukar eru nú í öðru sæti B-riðiils 1. deildar með 15 stig eftir 7 leiki en Fjölnir er með sama stigafjölda eftir 8 leiki. Sjá nánar um stöðuna og næstu leiki hér, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186 

Við látum nokkrar myndir fylgja hér með, þar á meðal myndir af öllum fimm mörkum Hauka í fyrri leiknum við Tindastól, og hvetjum um leið stuðningsmenn Hauka til að mæta á leikinn á föstudag og styðja stelpurnar okkar til sigurs.

Haukar bjóða áhorfendum frítt á leiki Haukastúlkna í 1. deildinni í ár.  

Áfram Haukar!

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  7.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  4.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  2.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  3.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  - tindastll - haukar 24.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  - tindastll - haukar 10.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  - tindastll - haukar 3.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  - tindastll - haukar 2.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd  - tindastll - haukar 1.jpg

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…