Haukar – Stjarnan í kvöld í Dominos deild kvenna

Haukar fá Stjörnustúlkur í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld, miðvikudaginn 12. desember, í 12 umferð Dominos deildar kvenna og hefst leikurinn kl. 19:15.

Haukarnir hafa verið að spila betur síðustu tvo leiki og hafa verið framfarir í liðinu og því má búast við þeim öflugum í kvöld á móti nágrönnum okkar úr Garðabænum. Liðið þarf nauðsynlega á stigum að halda til að fikra sig upp töfluna. Liðið er núna í 7 og næst síðasta sæti með jöfn stig og Skallagrímur sem situr í 6 sætinu og með sigri geta stelpurnar komist upp fyrir Skallagrím í 6 sætið.

Við hvetjum allt Haukafólk til að fjölmenna á leikinn og hvetja stelpurnar í baráttunni.

Áfram Haukar.