Haukar fara í Grindavík í kvöld í Dominos deild karla

Í kvöld er loksins Dominos deildin farin aftur af stað eftir landsleikjahlé og sækja Haukamenn Grindvíkinga heim og hefst leikurinn kl. 19:15.

Bæði lið unnu góða sigra í síðustu umferð, Haukar unnu sterkan og öruggan sigur á Keflavík á heimavelli á meðan Grindvíkingar lögðu KR á útivelli.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur þar sem með sigri geta Haukar farið í baráttu í efri hlutanum og sótt að heimavallaréttinum á meðan að Grindvíkingar geta jafnað Haukanna í töflunni.

Haukar sitja í 6-7 sæti deildarinnar með 4 sigra og 4 töp en Grindavík í því 9 með 3 sigra og 5 töp.

Við hvetjum Haukafólk til að gera sér ferð til Grindavíkur og hvetja strákana áfram í baráttunni.

Áfram Haukar.