Haukar – Keflavík Dominos deild kvenna á miðvikudaginn kl. 19:15

helenaKeflavíkurstúlkur koma í heimsókn í Schenkerhöllina miðvikudaginn 27. janúar og hefst leikurinn kl. 19:15.

Haukastúlkurnar hafa aðeins hikstað á nýju ári og hafa tapað tveim leikjum. Stelpurnar eiga samt góða möguleika á því að enda í efsta sæti í deildinni en þurfa þá að fara að sýna hvað í þeim býr og byrja að vinna leiki.

Keflavík hefur staðið sig ágætlega og hafa leikir þessa liði verið jafnir og skemmtilegir á þessu tímabili. Haukastelpurnar þurfa að mæta ákveðnar til leiks og sýna frá fyrstu mínútu að þær ætli ekki að gefa andstæðingnum nein grið. Aðeins hefur vantað uppá grimmd í varnarleiknum en núna eru stelpurnar ákveðnar í því að koma vel stemmdar til leiks frá fyrstu mínútu.

Við hvetjum alla til að mæta í Schenkerhöllina, koma með góða skapið og hvetja stelpurnar til sigurs.