Haukar – Keflavík, leikur 3

Haukur OskarsBakið er komið upp við vegg og leiða Keflvíkingar rimmuna 2-0, en okkar menn hafa sýnt það í síðustu tveimur leikjum að þetta er hægt og nú er bara að hafa trú á verkinu.

Leikur 3 fer fram á föstudaginn og hefjast leikar kl. 19:15 að venju, nú þurfum við að smekkfylla stúkuna og garga okkar menn áfram til sigurs

Við hvetjum alla Haukamenn til að fjölmenna á leikinn og að sjálfsögu sem fyrr verður grillað fyrir leik.

Ekki láta þessa stórgóðu skemmtun fram hjá þér fara.