Haukar – Fjölnir í kvöld kl. 19:15

Emil Barja

Emil Barja

Fyrsti heimaleikur mfl. kk í körfu er í kvöld, föstudaginn 25. september, gegn Fjölni kl. 19:15 í Schenkerhöllinni

Leikurinn er í Lengjubikarnum og eru Haukarnir efstir í sínum riðli. Strákarnir hafa spilað tvo útileiki og hafa þeir báðir unnist, á móti Stjörnunni og Þór Ak.

Strákarnir eru staðráðnir í því að halda áfram á sigurbraut og mun leikurinn í kvöld verða fyrsti leikur Stephen Madison. Einnig mun Finnur Magnússon spila sinn fyrsta heimaleik í vetur.

Við minnum svo alla á stuðningsmannakvöld Handboltans og körfunnar verður strax eftir leik  og hvetjum alla til að mæta.