Stuðningsmannakvöld handknattleiks- og körfuknattleiksdeildar á föstudaginn

Haukar logo fréttirHandknattleiks- og körfuknattleiksdeildir Hauka blása til stuðningsmannakvölds næstkomandi föstudag, þann 25. september, strax eftir leik Hauka og Fjölnis í lengjubikarnum körfunni.

Dagskrá kvöldsins:
Þjálfarar meistaraflokkanna munu fara yfir plön og markmið vetrarins.
Leikmenn verða kynntir.
Formenn deildanna munu halda tölu
Kynning á Haukum í horni
Kynning á Hauka-Tv,
ofl

Kveikt verður á grillinu þar sem seldir verða „burgerar“ gegn vægu gjaldi.

Að sjálfsögðu verður barinn opinn.

Enginn aðgangseyrir en hægt er, fyrir þá örlátu, að veita frjáls framlög á barnum til Haukar-TV. Allur ágóði kvöldsins mun fara í að kaupa tæki fyrir Haukar-Tv .

Haukar-TV er netsjónvarspsstöð Hauka sem sendir út alla heimaleiki Hauka. Haukar-TV fagna um þessar mundir 5 ára afmæli. tv.haukar.is

Við hvetjum alla til að mæta á undan á leik Hauka og Fjönis í lengjubikar mfl. kk í körfunni. Strákarnir verma efsta sæti síns riðils eftir tvo sigurleiki á útivelli, á móti Stjörnunni og Þór Ak.