Haukar fá KR í heimsókn í kvöld

Í kvöld mæta Haukastelpur KR-ingum kl. 19:15 á Ásvöllum í Iceland Express-deild kvenna.

Nú er búið að skipta deildinni í tvennt fjögur efri liðin(Haukar, Keflavík, Hamar og KR) mynda A-riðil og spila nú innbyrðis. Fjögur neðri liðin mynda B-riðil.

Liðin spila nú sex leiki í riðlunum og að því loknu hefst úrslitakeppni.

Haukum gekk afar vel í fyrri hlutanum en þeir unnu 13 og töpuðu aðeins 1 leik og voru efstar þegar deildinni var skipt í tvennt.

Heimasíðan hvetur alla til þess að fjölmenna á Ásvelli og hvetja stelpurnar til dáða.

Mynd: María Lind Sigurðardóttir og Slavica Dimovska hafa ærna ástæðu til að vera glaðarstefan@haukar.is