Haukar B taka á móti Skallagrími

Haukar B taka á móti Skallagrími annað kvöld í 32. liða úrslitum í Poweradebikarsins.Í ljós þess að færri munu komast að en vilja hefur verið ákveðið að miðasala á leikinn hefjist kl. 04:00 í nótt og búist er við því að allir miðar verði orðnir seldir um 7:00 í fyrramálið. Jafnframt hefur verið ákveðið að stilla miðaverði í hóf til að gefa sem flestum færi á að komast á völlinn og kostar litlar 1000 krónur inn.

Haukum B hafa gengið ágætlega í bikarkeppninni þegar liðið hefur tekið þátt og spilaði í 16. liða úrslitum í fyrra þar sem ungstirnin í Njarðvík fóru með tæpan sigur af hólmi, 57-112.

Leikurinn hefst kl. 20:15 og það er um að gera að mæta snemma til að tryggja sér sæti.