Haukar í úrvalsdeild

HaukarHaukar unnu Val í kvöld 73-82 og endurheimtu um leið sæti sitt í úrvalsdeild karla. Einvígi liðanna endaði 2-0 Haukum í vil og eru þeir komnir meðal þeirra bestu á ný.

Góð stemning var í Vodafone-höllinni en þetta var fyrsti sigur Hauka í því ágæta húsi.

Semaj Inge skoraði manna mest fyrir Hauka eða 27 stig en hann tók einnig 11 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Davíð Páll Hermannsson var með 16 stig og Sævar Ingi Haraldsson með 14 stig.

Nánari verður fjallað um leikinn síðar.

Til hamingju Haukar