Haukar – ÍBV á sunnudaginn!

Næstkomandi sunnudag mætir topplið 1.deildar á Ásvelli.

Leikurinn hefst klukkan 14:00. Leikurinn er liður í 7.umferð deildarinnar. Eyjamenn eru enn taplausir í deildinni og með markatöluna 16 – 1 og því er kærkomið fyrir allt Haukafólk að fjölmenna á leikinn á sunnudaginn og hvetja strákana til sigurs.

Strákarnir okkar eru sem stendur í 4.sæti með 9 stig jafn mörg stig og Fjarðabyggð, Þór og Víkingur Ólafsvík.

Allir á völlinn – ÁFRAM HAUKAR!

Haukar – ÍBV; 14:00 Sunnudaginn.