Glæsilegur sigur Haukastúlkna á Fjölnisstúlkum á Ásvöllum

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 27.jpgHann var glæsilegur leikur Haukastúlkna á Ásvöllum í kvöld þegar sigur vannst á Fjölnisstúlkum, 4-0 en staðan í hálfleik var 1-0.  Markaskorarar Hauka í leiknum voru þær Marcela Franco með tvö, það fyrsta og fjórða, Sara Elnicky með annað markið og Brooke Barbuto með þriðja markið.  

Haukar voru í 3. sæti fyrir leikinn í kvöld, með 12 stig eftir 6 leiki en Fjölnir var í 2. sætinu með 15 stig einnig eftir 6 leiki.  Mikilvægi leiksins í kvöld var því mikið. Sigur Hauka kemur þeim í 2. sætið á betri markatölu en Fjölnir. Selfoss trónir hins vegar taplaust í efsta sætinu eftir 7 umferðir með 21 stig.  Selfoss á eftir að spila bæði við Fjölni og Hauka á útivelli þannig að ýmislegt getur breyst áður en yfir lýkur.  Sjá nánari upplýsingar um stöðuna í deildinni hér, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186

Heimir Porca þjálfari Hauka var að vonum ánægður eftir leik.  Hann sagði, með fullri virðingu fyrir Fjölnisliðinu, að þá hefði aðeins eitt lið verið á vellinum í kvöld og aldrei spurning um úrslit leiksins – aðeins spurning hversu mörg mörk Haukastúlkur skoruðu. Fjölnisstúlkur hefðu aðeins einu sinni í leiknum náð að ógna marki Hauka.

Heimir sagði að það hefði verið mikilvægt að ná sigri eftir að hafa tapað fyrri leiknum við Fjölni í Grafarvogi.  Hann hrósaði sínum leikmönnum og sagði alla leikmenn Hauka hafa staðið sig vel, bæði byrjunarliðsleikmenn í kvöld og þá sem inn á komu. Sumir skora mörkin en hjá öðrum eins og miðjumönnum og kantmönnum liggur mikil vinnsla að baki.  Liðið væri að smella betur og betur saman og framhaldið liti bara vel út sagði ánægður þjálfari Hauka í lokin. 

Næsti leikur Haukastúlkna verður föstudaginn 22. júlí nk. á Ásvöllum og verður þá leikið við Tindastól.

Áfram Haukar! 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 82.jpg

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 159.jpg

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 152.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 151.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 38.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/img_6932 - copy.jpg

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd orsteinn lafs 123.jpg

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…