Getraunleikur Hauka hefst laugardaginn 15. september í samkomusalnum

HaukarLeikurinn verður með hefðbundnu sniði. Keppt verður í riðlum frá og með 15. september í 10 vikur. Hefst þá úrslitakeppnin sem verður 5 vikur og verður verðlaunaafhending þann 31/12 í tengslum við Viðurkenningarhátíð Hauka.

Nokkrar minniháttar breytingar eru á reglum sem eiga að gera leikinn skemmtilegri. Breytingarnar verða settar á netið á næstu dögum en reglubreytingarnar má sjá hér að neðan. Þátttaka í leiknum kostar kr. 4.000 fyrir hvert lið.

Fyrir þá sem ekki þekkja þá er ekki nauðsynlegt að kaupa raðir til að geta tekið þátt í leiknum heldur bara skila röðum inn á laugardögum. Opnunartími getrauna hjá Haukum verður frá 10:00 – 13:00 alla laugardaga í vetur en munið að ekki er nauðsynlegt að mæta á staðinn til að taka þátt í getraunaleiknum því hægt er að skila röðum á netinu á netfangið 1×2@haukar.is eða í getraunakassa í afgreiðslunni.

Verðlaun verða í betri kantinum í ár en fyrir 1. sæti verða tvö gjafabréf að verðmæti 30.000 kr. (hvort) frá Icelandair.

Við byrjum með krafti núna á laugardaginn. Klukkan rúmlega 11 fer Ólafur Jóhannesson yfir sumarið í karlaboltanum og leikinn við Víking R. (síðar um daginn þann fimmtánda)  og síðan mun Aron Kristjánsson fara yfir Evrópuleikinn í handboltanum. Boðið verður uppá súpu á laugardaginn og í framhaldi af getraunum er hægt að fara á Evrópuleik í handknattleik en leikið verður við HC – Mojkovac klukkan 17:00 í Schenkerhöllinni.

Nú viljum við sjá ykkur öll og tökum þátt í skemmtilegu starfi!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…