Góður sigur hjá strákunum gegn Víkingi Ó. í gærkvöldi

Guðmundur Viðar MeteÞar til í byrjun síðustu viku hafði karlalið Hauka ekki unnið heimasigur í 1. deildinni í sumar. Þar varð heldur betur breyting á því fyrst náðist góður sigur gegn liði Selfoss í byrjun vikunnar og í gærkvöldi tóku strákarnir á móti Víkingi Ólafsvík. Það er skemmst frá því að segja að Haukar sigruðu 1-0 með góðu marki frá Hilmari Rafni Emilssyni á 32 mínútu leiksins. Leikurinn var á köflum vel leikinn og það var aðeins fyrir óheppni og frábæra markvörslu hjá markvörðum liðanna að ekki sáust fleiri mörk á Ásvöllum í gærkvöldi.
Með sigrinum færðust Haukamenn upp í 3ja sæti deildarinnar með 20 stig, jafmörg og Þróttur R. sem er í 4ja sæti en 5 stigum minna en lið Selfoss sem situr sem fastast í 2. sæti. Skagamenn eru stungnir af í deildinni og hafa 34 stig eftir 12 umferðir. Smellið hér til að fá stöðuna, úrslit annarra leikja og leikjaplanið framundan. 

Eftir leikinn í gærkvöldi var valinn maður leiksins hjá Haukum. Í þetta skiptið var það varnarjaxlinni Guðmundur Viðar Mete sem varð fyrir valinu. Ófáar sóknir Víkíngs Ó. stoppuðu á honum í gærkvöldi og fékk hann í verðlaun mat fyrir tvo frá KFC. Annars var það mikil barátta og góð liðsheild sem skóp sigurinn öðru fremur. Áhorfendur létu líka vel í sér heyra og hvöttu strákana áfram ásamt hinum öfluga þjálfara þeirra, Magnúsi Gylfasyni, sem er klárlega að vinna mjög gott starf með liðið.

Næsti leikur Hauka er útileikur gegn BÍ Bolungarvík laugardaginn 23. júlí og hefst hann kl 14.00. Spurning um að fjölmenna vestur og styðja við bakið á strákunum.

 Áfram Haukar!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…