Laugardaginn 29. jan. kl. 14:20 fer fram fyrsti leikur meistraflokks kvenna .undir stjórn Salih Heimis Porca.
Haukar etja kappi við ÍA í Faxaflóamótinu og verður um hörkuleik að ræða þar sem ÍA er með mjög sterkt lið um þessar mundir, sem dæmi þá lögðu þær lið Breiðabliks fyrir skemmstu 1-0.
Viljum við hvetja alla til að mæta og hvetja okkar lið.