Fyrsta stigið á heimavelli orðið staðreynd

Kristján Ómar, bættist við í hetjulistann hjá Haukum í gærÞað sýndi sig bersýnilega í gærkvöldi að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómari leiksins flautar leikinn af, því leik klukkan sýndi 93:34 þegar Kristján Ómar Björnsson skoraði jöfnunarmark Hauka gegn Fylki í 10.umferð Pepsi-deildar karla og þar með fyrsta stig Hauka á heimavelli í sumar, staðreynd.

Daníel Einarsson var í banni hjá Haukaliðinu en sem fyrr vantaði Hilmar Trausta, Garðar og Þórhall Dan sem og Daða Lárusson markvörð en í hans stað stóð Amir Mehica sem með stakri prýði og varði á köflum mjög vel. Í fjarveru Hilmars, Þórhalls og Daða var Arnar Gunnlaugsson því fyrirliði Hauka í leiknum í gærkvöldi og þar með fjórði fyrirliði Hauka í sumar. Hver verður næsti fyrirliðinn?

Fyrri hálfleikurinn var rólegur til að byrja með, en síðan fóru leikar að æsast, Haukar sóttu að marki Fylkis í 10 mínútur en síðasta korterið í fyrri hálfleiknum var hálfgerð eign Fylkismanna. Það lá því mark í loftinu hjá þeim og það kom í byrjun seinni hálfleiks.

Haukar gáfust ekki upp og jöfnuðu metin eins og fyrr segir í uppbótartíma og fimmta jafnteflið á tímabilinu staðreynd. Næsti leikur Hauka er næstkomandi fimmtudag, á Vodafone-velli Valsmanna, þar sem Haukar og Valur mætast en sá leikur er heimaleikur Vals.

 Umfjöllun um leikinn, frá Fótbolti.net

Viðtal við hetjuna, Kristján Ómar, frá Fótbolti.net

Viðtal við Andra Marteins., frá Fótbolti.net

Umfjöllun um leikinn, frá Vísi.is

Viðtal við hetjuna, Kristján Ómar, frá Vísi.is

Viðtal við rauðkálið, Kristján Ómar, frá MBL.is

Viðtal við Andra Marteins., frá MBL.is

Viðtal við rauðkálið, Kristján Ómar, frá Sport.is

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…