Fréttasafn

  • ÍBV-Haukar mfl.kv.

    Stelpurnar töpuðu 18-14 fyrir ÍBV útí Eyjum í gær. Staðan í hálfleik var 10-8. Þetta var fyrsti tapleikurinn í langan langan tíma og eina “jákvæða” sem segja má um tapið, er að nú er tapleikurinn búinn og leiðin bara uppá við.

  • Barcelonaferðin

    Æ æ æ Að öllum líkindum verður ekkert af hópferðinni, þar sem ódýrasta verð með hóteli yrði um 65.000. Þeir sem hafa áhuga á að fara geta haft samband við Úrval Útsýn í síma 585-4140 og fengið upplýsingar.

  • Barcelona

    Það er verið að vinna hörðum höndum að koma á hópferð til Barcelona. Planið er að fara út fimmtudagsmorgun 8. nóv og koma heim sunnudagskvöld 11. nóv. Nánari fréttir hér á síðunni um leið og fleira verður klárt. Ferðahaukar fylgist með.

  • Leikir helgarinnar

    Stelpurnar spila út í Eyjum kl. 16.00 á laugardag. Strákarnir taka á móti Stjörnunni á Ásvöllum á sunnudag kl. 17.00 Takið með ykkur pyngjuna og kaupið miða á Evrópusamkvæmið 27. október. Miðaverð aðeins 1.500 kr. Matur, flamingo ofl. – skemmtun að hætti Hauka.

  • HK – Haukar karlar

    Strákarnir unnu HK 22-24 í Digranesi í kvöld. Staðan í hálfleik var 13-14 fyrir okkur. Ekki var leikurinn mikið fyrir augað, allt önnur spilamennska en sást í evrópuleiknum síðastliðna helgi. Segja má að Haukar hafi spilað leikinn í lága gírnum, en það dugði til og sigurinn var í höfn.

  • Verður hópferð til Barcelona

    Eftir dráttinn í Evrópukeppninni kom það í ljós að stórliðin Haukar og Barcelona etja kappi saman um miðjan næsta mánuð. Eftir að þetta kom í ljós hefur sími handknattleiksdeildar ekki stöðvast vegna fyrirspurna um ferð á leikinn ytra. Nokkrir áhugasamir félagar í “Haukum um heim allan” hafa sett sig í samband við ýmsa aðila og…

  • Evrópukeppnin

    Eins og fram kemur hér að framan fengum við spænska stórliðið Barcelona í næstu umferð Evrópukeppninnar. Fyrri leikurinn verður úti helgina 10. eða 11. nóv. og seinni leikurinn hér heima helgina 17. eða 18. nóv. Viggó gerði garðinn frægan á árum áður með Barcelona og þekkir vel hversu magnað þetta lið er. Barcelona er eitt…

  • Haukar-Kolporter

    Haukar unnu frábæran sigur á Kolporter frá Póllandi 33-27 og eru þar með komnir í þriðju umferð Evrópukeppninnar. Haukar byrjuðu betur, komust í 3-0 og 4-1, síðan jöfnuðu Kolporter 4-4, og við síðan í 8-4. Staðan í hálfleik var 18-11 fyrir okkur. Í seinni hálfleik voru Haukar alltaf með yfirhöndina og komust 8 eða 9…