Fréttasafn

  • Laugardagur kl: 08:00

    Þeir voru hressir og lausir við alla morgunþreyttu strákarnir 14 sem mættu á æfingu í Íþróttahúsinu á Ásvöllum morgun klukkan 08:00. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem knattspyrnudeildin er með æfingar laugardagsmorgna kl: 08:00. Á okkar fyrstu æfingu var stutt upphitun og svo var spilað á tveimur stórum völlum. Strákarnir voru því á fullu…

  • Haukar-Kiel í Meistadeildinni

    Nú styttist í handboltaveisluna þar sem strákarnir okkar spila við þá bestu í heiminum í Meistaradeildinni. Þeir hafa lagt hart að sér til að geta att kappi við sterkustu lið Evrópu og á sunnudaginn taka Haukar á móti einu albesta liði heims, Kiel frá Þýskalandi. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Ásvöllum og hvetjum við alla…

  • Haukar-Fram mfl.karla

    Strákarnir okkar unnu góðan sigur 31-25 á Fram á Ásvöllum í kvöld. Gestirnir skoruðu fyrsta markið og var það í eina skiptið í leiknum sem þeir voru yfir. Jafnt var 2-2 en þá sigu Haukar framúr og breyttu stöðunni fljótt í 8-4. Í hálfleik var 17-11 og í síðari hálfleik var munurinn mestur 7 mörk….

  • Hópferð til Kiel ???

    Þar sem mikið hefur verið spurt um hópferð á leik í Meistaradeildinni er könnun í gangi hér á heimasíðunni. Um er að ræða “Hópferð að hætti Hauka” til Kiel helgina 6./7. nóvember. Reikna má með að verðið verði í kringum 48.000 og er þá innifalið flug, gott hótel og transport til og frá flugvelli. Skráið…

  • Byrjum….

    Á morgun 05.10 byrjum við á Ásv. kl. 19.00-20.00. Fyrst verður fundur(stuttur)síðan förum við út,komið vel klæddar-látið berast-gaman væri að sjá einhver „ný“ andlit. Heimasíða í vinnslu-verður betri en í fyrra og flottari-Sjáumst allar á morgun.

  • Byrjum á morgun

    Á morgun þriðjud. 05.10 verður æfing kl. 18.00-19.00 á Ásvöllum. Fyrst verður smá rabb síðan förum við út og spilum. Heimasíða flokksins er í vinnslu og vonandi kemur hún upp fljótlega-endurbætt. Látið berast. Sjaumst á morgun-vel klæddar.