Fréttasafn

  • Æfingar fyrir börn – Kynning

    Við reynum að brydda upp á einhverju bæði skemmtilegu og alvarlegu í bland. Hópnum mun verða skipt amk. stundum upp í smærri hópa til að reyna að veita þeim þjálfun við hæfi. Einnig munum við æfa okkur með ýmiskonar keppni Hvatt verður til mótaþátttöku á hinum ýmsu mótum en hápunkturinn fyrri part vetrar verður þegar…

  • Góð mæting á opinn fund knattspyrnudeildar

    Mikil og góð mæting var á opinn fund sem haldinn var á vegum knattspyrnudeildar í gærkvöldi og komu fram margar áhugaverðar tillögur að framtíðarskilpulagi Ásvallasvæðisins. Annar opinn fundur vegna skipulagsmála verður haldinn þriðjudaginn 26. okt. kl. 19:30 á vegum aðalstjórnar félagsins. Mikilvægt er að allir velunnarar knattspyrnudeildarinnar mæti á þann fund og kynni sér framtíðaráform…

  • SIGUR Á FH

    3.flokkur kvenna spilaði sinn fyrsta leik í Faxaflóamótinu í dag sunnudag 17.10 og tóku okkar stelpur á móti stöllum sínum úr hinu Hafnarfjarðarliðinu FH og unnu verðskuldaðan sigur 3-0. Okkar stelpur spiluðu vel og hefðu mörkin hæglega geta orðið fleiri. Fjórar stelpur úr 4.fl.kv. spiluðu með og stóðu sig mjög vel eins og reyndar allt…

  • Haukar-Fram mfl. kvenna

    Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur 37-25 á Fram á Ásvöllum í dag. Þær byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu fyrstu sjö mörkin, já 7-0 var staðan. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 10-2 og í hálfleik 17-8. Þær juku forskotið í byrjun seinni hálfleiks í tólf mörk 26-14 en slökuðu þá um of á…

  • Skákæfing 12/10.

    14 manns mættu á skákæfingu síðastliðinn þriðjudag. Það var mjög gaman að sjá ný andlit á borð við gamla brýnið Hauk Sveinsson og Halldór Garðarsson og vonandi að þeir mæti sem oftast. 1. Þorvarður 12 af 13. 2. Jón Magnússon 11,5 3. Haukur Sveinsson 9,5 4. Sverrir Þorgeirss. 8 5-6. Snorri Karlsson Svanberg Már 7,5…

  • Creteil-Haukar

    Strákarnir okkar töpuðu 34-31 fyrir franska liðinu Creteil í París í gær. Þrátt fyrir tapið stóðu þeir sig vel á útivelli gegn sterku liði frakkana. Þeir mættu vel stemmdir til leiks og báru enga virðingu fyrir sterkum andstæðingnum. Byrjunin var fín og var leikurinn jafn í upphafi. Með hjálp þeirra gulklæddu seig Creteil framúr, en…

  • Creteil-Haukar, bein útsending

    Í nótt vorum við flest enn í draumaheim þegar strákarnir okkar voru komnir á stjá.Þeir lögðu af stað að heiman fyrir fimm í morgun og lá leiðin fyrst til Keflavíkur og þaðan var flogið til Stokkhólms. Frá Stokkhólmi fljúga þeir til Parísar og er áætluð lending þar kl. 16:35. Leikurinn við Creteil er á morgun,…