Fréttasafn

  • Skákþing Hafnarfjarðar.

    Skákþing Hafnarfjarðar. Skákþing Hafnarfjarðar 2004 fer fram dagana 7-9/1 2005 Teflt verður í Álfafelli, Íþróttahúsinu Strandgötu. (Staðsetning gæti breyst) Teflt verður eftir Swiss Monrad. Föstudaginn 7/1 verða tefldar 3 atskákir með umhugsunartímann 25 mín, og hefst taflið kl. 19.00. Laugardaginn 8/1 verða tefldar 2 skákir með umhugsunartímann 1,5 á 30 leiki og 30 mín til…

  • Íþróttamaður Hauka 2004

    Í dag , gamlársdag var að venju valinn Íþróttamaður Hauka. Tillnefndir voru fulltrúar frá öllum deildum félagsins og þar voru samankomnir frábærir fulltrúar Hauka. Það var okkar í handknattleiksdeildinn mikil ánægja að okkar maður, Ásgeir Örn Hallgrímsson var kjörinn Íþróttamaður Hauka 2004. Hann bar titilinn einnig s.l. ár og þarf vart að kynna strákinn. Ásgeir…

  • Heimir Skákmaður Hauka 2004!

    Heimir skákmaður Hauka 2004 Skákmaður Hauka verður tilnefndur í þriðja sinn núna á gamlársdag. Skákmaður Hauka 2004 er Heimir Ásgeirsson. Heimir hefur verið einn traustasti skákmaður Hauka frá stofnun deildarinnar. Hann hefur ekki tapað kappskák í Íslandsmóti skákfélaga fyrir Hauka. Heimir var fyrsti skákmaður Hauka til að vinna sér inn keppni í landsliðsflokki þegar hann…

  • Skákæfing 28.desember.

    Páll Sigurðsson og Þorvarður F. Ólafsson sigruðu á síðustu æfingu ársins, sem fram fór í gærkveldi. Þátttakendur voru 13. Gaman var að sjá nýtt andlit, Garðbæinginn Sindra Guðjónsson, og vonandi að hann komi til með að mæta sem oftast. Páll byrjaði á því að leggja Varða (í Skandinavanum) í 1.umferð og fylgdi því eftir með…

  • Samið við Arnar Stein

    Það er ánægjulegt að greina frá því að gengið hefur verið frá félagaskiptum Arnars Steins Einarssonar úr Víkingi R í Hauka. Um leið skrifaði Arnar Steinn undir þriggja ára samning við Haukamenn. Haukar vænta mikils af þessum skemmtilega framherja á næsta sumri.