Heimir Skákmaður Hauka 2004!

Heimir skákmaður Hauka 2004
Skákmaður Hauka verður tilnefndur í þriðja sinn núna á gamlársdag. Skákmaður Hauka 2004 er Heimir Ásgeirsson. Heimir hefur verið einn traustasti skákmaður Hauka frá stofnun deildarinnar.

Hann hefur ekki tapað kappskák í Íslandsmóti skákfélaga fyrir Hauka.

Heimir var fyrsti skákmaður Hauka til að vinna sér inn keppni í landsliðsflokki þegar hann lenti í 2. sæti í áskorendaflokki á Skákþingi Íslands 2004. Hann keppir í Landsliðsflokki 2005.

Heimir er einnig atskákmeistari Hauka 2004.

Einnig er Heimir ötull að mæta á skákæfngar þar sem að hann stendur sig undantekningalaust vel hvort sem er að leik eða starfi.

Heimir er vel að titlinum Skákmaður Hauka 2004 kominn.