Fréttasafn

  • Leikjaskóli barnanna – tími fellur niður laugardaginn 21. janúar 2023.

    Við verðum því miður að tilkynna að Leikjaskóli barnanna fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum næstkomandi laugardag, 21. janúar kl. 09:00. Næsti tími í Leikjaskólanum verður því þann 28. janúar kl. 09:00. Við hörmum að þurfa að gera þessar breytingar, en munum bæta við tíma í Leikjaskólanum í vor. Með bestu kveðju, starfsfólk Leikjaskólans.

  • Undanúrslit í VÍS bikarnum

    Meistaraflokkur kvenna í körfubolta mætir Snæfelli í dag í undanúrslitum VÍS bikarins. Leikið er í Laugardalshöll og hefst leikurinn kl. 17:15. Miðasala fer fram í miðasöluappinu Stubbur og eru stuðningsmenn Hauka hvattir að velja Haukamiða í appinu en allur ágóði af þeim miðum seldum rennur til Hauka. Sjáumst í Höllini. Áfram Haukar!!!!!

  • Þrettándagleði á Ásvöllum

    Það ríkti gleði í augum barnanna sem mættu á Ásvelli í gær á Þrettándagleði þar sem jólin voru kvödd. Söngur, glens og gaman og jólasveinn og púkar léku við hvern sinn fingur á þessum síðasta degi jóla. Þá var í boði rjúkandi heitt súkkulaði og sérbakaðar kleinur að ógleymdum stjörnuljósum í tilefni dagsins. Margt var…

  • Þrettándagleði á Ásvöllum

    Jólin verða kvödd með dansi og söng á glæsilegri Þrettándagleði á Ásvöllum föstudaginn 6. janúar. Hátíðin hefst kl. 18. Guðrún Árný stjórnar söng og dansi af sviði. Kertasníkir, Grýla, álfar og púkar verða á sveimi á svæðinu. Í afgreiðslu verður hægt að kaupa kakó, kleinur og stjörnuljós.  Hátíðinni lýkur um kl. 18:45 með glæsilegri flugeldasýningu…

  • Við sækjum jólatréið þitt

    Föstudaginn 6. janúar verða sjálfboðaliðar Körfuknattleiksdeildar Hauka á ferðinni og sækja jólatré heim til fólks sem óska eftir því. Hægt er að skrá sig inná www.korfubolti.is, ganga frá greiðslu og á föstudag tökum við tréið þitt. https://korfubolti.is/product/jolahappdraetti-kkd-hauka/  

  • Vinningsmiðar í happdrætti kkd. Hauka

    Búið er að draga í happdrætti kkd. Hauka. Hægt er að nálgast upplýsingar um vinningsmiðana með því að smella á fyrirsögnina. Mánudaginn 9. janúar frá 16:00-18:00 verður hægt að nálgast vinninga á skrifstofu körfuknattleiksdeildarinnar í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum. Nr. Vinningur  Verðmæti Vinningsnúmer 1 Cube Nature Allroad 2022 hjól frá TRI        127.990 25 2 Gjafabréf…

  • Viðurkenningarhátíð Hauka á Gamlársdag 2022.

      Elín Klara Þorkelsdóttir var valin íþróttakona Hauka, Heimir Óli Heimisson var valinn iþóttamaður Hauka og Kristján Ó. Davíðsson var valinn þjálfari Hauka. Hér eru nokkrar myndir frá viðurkenningarhátíðinni. Tjörvi Þorgeirsson tók við viðurkenningunni fyrir hönd Heimis Óla sem ekki hafði tök á að mæta. Hér fylgir einnig ávarp formanns Hauka, Magnúsar Gunnarssonar. Kæru vinir,…

  • Sara Odden snýr aftur til Hauka

    Sara Odden sem leikið hefur BSV Sachen Zwickau í Þýskalandi úrvalsdeildinni i vetur snýr aftur til Hauka nú í janúar. Sara mun styrkja Haukaliðið mikið í komandi baráttu og hlakkar okkur til að sjá hana aftur á vellinum Við bjóðum Söru velkomna aftur á Ásvelli Hulda Margrét ljósmyndari / photography

  • Gleðilega jólahátíð

    Óskum ykkur, kæru Haukafélagar,  stuðningsaðilum og öðrum velunnurum félagsins, gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegar samverustundir og stuðning á árinu sem er að líða. Stefnum á nýtt ár með nýjum tækifærum og fleiri áskorunum! Áfram Haukar.