Haukar – KR. Fyrsti leikur í undanúrslitum, fimmtudaginn 5. apríl kl. 19:15
Fyrsti leikur í undanúrslitaeinvíginu á milli deildarmeistara Hauka og Íslandsmeistara KR fer fram fimmtudaginn 5. apríl kl. 19:15 í Schenkerhöllinni. Haukar komust áfram eftir ótrúlega spennandi einvígi á móti Keflavík, þar sem úrslit réðust í frábærum oddaleik í Schenkherhöllinni. það voru vel yfir 2000 manns á vellinum að styðja liðin og var stemningin hreint út…
