Fjórði leikur í 8 liða úrslitum Dominos deildar, Keflavík – Haukar í kvöld kl. 19:15

Fjórði leikur í 8 liða úrslitum Dominos deildar fer fram í kvöld í Keflavík kl. 19:15 og hvetjum við Haukafólk til að fjölmenna á leikinn og hvetja liðið áfram í þessari miklu baráttu.

Staðan er 2-1 fyrir Hauka og þurfa einn sigur til að komast í undanúrslit. Síðasti leikur tapaðist, í Schenkerhöllinni, þar sem baráttan var allsráðandi. Haukar leiddu allan seinni hálfleik og í raun hentu frá sér sigrinum á lokamínútum leiksins.
Allir eru staðráðnir í því að koma grimmir til leiks og klára seríuna í Keflavík.

Við hvetjum allt Haukafólk til að fjölmenna til Keflavíkur í kvöld og hvetja strákana áfram til sigurs.