Frétta- og blaðamannafundur kkd. Hauka kl. 11:45

HelenaStjórn körfuknattleiksdeildar Hauka býður til blaðamannafundar í hádeginu þriðjudaginn 5. maí kl. 11:45. Á fundinum verður skrifað undir samninga við þjálfara meistaraflokka deildarinnar auk þess sem að skrifað verður undir samninga við Helenu Sverrisdóttur. Tækifæri gefst fyrir fjölmiðlafólk að taka viðtöl við þá einstaklinga.

Fjölmiðlafólk er sérstaklega boðið velkomið en boðið verður upp á léttar veitingar!

Með körfukveðju,

Kjartan Freyr Ásmundsson
Formaður körfuknattleiksdeildar Hauka