Uppskeruhátíð Haukagetrauna

1x2Það var léttleiki og eftirvænting sem ríkti á fjölmennri Uppskeruhátíð Haukagetrauna á föstudagskvöldið hér á Ásvöllum. Jón Björn formaður hátíðarnefndar stjórnaði athöfninni af festu og myndugleika. Úrslit Vorleiksins urðu þessi:

Úrvalsdeild – 1. sæti Canucks með 44 stig

Úrvalsdeild – 2. sæti Steinn með 42 stig

Úrvalsdeild – 3. sæti Gunnarsbær með 42 stig

Álpappírsdeild – 1. sæti Everton FC með 41 stig

Álpappírsdeild – 2. sæti Just Do It með 40 stig

Álpappírsdeild – 3. sæti Baldrar með 40 stig

Lehmannsbræðradeild – 1. sæti Góufeðgar með 226 stig

Heildarúrslit Vorleiksins má sjá á heimasíðu – Getraunir