Fossvogsmót HK

5-6-7 flokkur kvenna

Sæl öll.

Smávegis breytingar hafa orðið, ekkert sem raskar þó tímaáætlun að einhverju viti.

5.flokkur.

Breiðablik datt út úr keppni og því hefur niðurröðun breyst á þann veg að riðlar detta niður og í stað kemur einn riðill á öll lið(A,b,C) Skoðið vel, mót styttist smávegis sem er bara gott mál.

6.flokkur.

Engar breytingar.

7.flokkur.

Engar vissar breytingar. Bið þó lið um að skoða vel leikjaplan.

Skoðið eftirfarandi leikreglur. Sér í lagi leiktímann, sjá meðfylgjandi viðhengi.

Minnum á þrautakeppnir mótsins, þar sem veitt verða verðlaun fyrir bestan árangur í “halda á lofti” og “tímaþraut” . Þrautir verða á velli 8 og vonum við að þið senda stelpurnar í hollum milli leikja. Mótsgjöld greiðast inni hjá mótsstjórn, þar verða afhent miðar fyrir sund og grill.

Í lok móts verður verðlaunaafhending þar sem hver stelpa fær þátttökupening, bikar er fyrir fyrsta sæti. Grillað verður fyrir alla þátttakendur ásamt því sem fjölskyldumeðlimir geta keypt sér fyrir vægt gjald. Einnig fá stelpurnar sundmiða í sundlaugar Kópavogs, sem þær geta nýtt sér við næsta tækifæri.

Lokaorð fyrir mót:

Leggjum öll áherslu á að gera okkar besta og höfum GAMAN AF

Mótstjórn

Nánar á heimasíðu HK

http://www.hk.is/web/?&OZON=Z3JvdXA9NjQxNQ#