Drengjaflokkur fer vel af stað

HaukarDrengjaflokkur hefur farið vel af stað í vetur og unnið all sína leiki í byrjun móts. Á þriðjudaginn síðast liðinn mætti  Drengjaflokkur  Hauka  Stjörnunni  inní  Ásgarði.

Fyrrihálfleikurinn  var jafn og spennandi. Haukastrákarnir  voru  heldur slakir í fyrri hálfleik og nýtti Stjarnan sér það og leiddu með einu stigi í hálfleik. Haukarnir komu mun sprækari  inn í síðari hálfleikinn og lögðu ungt og efnilegt lið Stjörnunnar af velli  70 – 91.

Stigahæstu menn Hauka:
Guðmundur Kári  Sævarsson & Bragi Michaelsson voru  með 20 stig hvor.
Guðmundur Darri Sigurðsson & Alexander Jarl voru með sinhvor 17 stiginn.

Drengjaflokkur hauka hefur nú leikið þrjá leiki og hafa strákarnir unnið alla leikina.
Þeir kepptu á móti KFÍ síðast liðinn Sunnudag og unnu Þann leik 83 – 73.

Atkvæðamestu leikmenn:
Alexander Jarl : 25 stig – 8 fráköst – 10 tapaðir boltar – 2 stolnir boltar
Guðmundur Kári : 21 stig – 5 fráköst – 3 tapaðir boltar – 5 stolnir boltar – 6 stoðsendingar
Guðmundur Darri  : 17 stig – 9 fráköst – 1 varinn bolti – 3 tapaðir boltar – 1 stolinn – 1 stoðsending.

Strákarnir spiluðu einnig á móti ÍR en það var fyrsti leikur strákanna á tímabilinu.
Þeir lögðu ÍR inganna af velli 87 – 57.

Haukastrákar eru ánægðir með byrjunina á tímabilinu þótt margt megi laga og fín pússa. Andri Freysson snýr aftur til æfinga í næstu viku og verður það mikill styrking fyrir flokkinn, Andri hefur verið frá vegna meiðsla í tæpt hálft ár núna , vonandi halda strákarnir áfram á sömu braut.
Þeir mæta ÍA 12.10 næst komandi  klukka 21:15 á Ásvöllum

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…