Deildarbikarinnkeppnin rýrnar
Skallagrímur frá Borgarnesi hefur dregið lið sitt úr Deildarbikarkeppninni sökum manneklu og því ljóst að leikjum Hauka í Deildarbikarnum fækkar, þar sem Skallagrímur átti að leika í sama riðli og Haukar. Haukar munu því einungis leika fjóra leiki í riðlakeppni þessa móts. Mótið hefst hjá Haukum með leik gegn ÍR sunnudaginn 13. næstkomandi, og mun þáttöku liðsins ljúka 16 apríl, fari svo að liðið vinni ekki sinn riðil og í framhaldi spili til úrslita.
Það er því að koma á daginn að það hefur töluverða þýðingu hvort lið ljúki keppni í 8.sæti í 1. deildinni eða 6. sæti, þar sem efstu sex sætin í 1.deild tryggja þáttökurétt í A-deild Deildarbikarsins að ári, sem felur í sér fleiri leiki gegn sterkari mótherjum miðað við þáttöku í B-deild.
