Daníel Einarsson skrifar undir nýjan samning

HaukarFyrr í dag skrifaði varnarmaðurinn sterki, Daníel Einarsson undir nýjan eins árs samning við Hauka og er því ljóst að hann mun spila fyrir Hauka að minnsta kosti eitt sumar í viðbót.

Daníel kom til liðs við Hauka fyrir síðasta tímbil frá ÍH og var fastamaður í vörn Hauka í allt sumar og lék alls 20 leiki fyrir Hauka í sumar og skoraði í þeim tvö mörk.

Þetta eru frábær tíðindi fyrir Hauka enda var Daníel talinn vera einn af betri leikmönnum Hauka í sumar og gerði mun betur en björtustu menn þorðu að vona enda hafði hann leikið í neðri deildum með ÍH síðustu sumur sem og að hann hafði verið að berjast við erfið meiðsli.

Eins og fyrr segir skrifar Daníel undir eins árs samning og verður því vonandi klár í slaginn þegar tímabilið hefst á næsta ári í 1.deildinni sem verður með sterkari móti.

Fleiri fréttir af leikmannamálum Hauka munu birtast hér á síðunni um leið og eitthvað nýtt gerist.