Fréttir

fréttir

  • Haukastrákar á EM

    U-20 ára landslið karla var einnig á stórmóti á dögunum þegar þeir tóku þátt á Evrópumóti U-20 ára liða. Þar áttu Haukar einnig fulltrúa sem hjálpuðu liðinu að ná 7. sæti mótsins sem er jöfnun á besta árangri Íslands í þessum árgangi. Í liðinu voru þeir Andri Fannar Elísson, Birkir Snær Steinsson, Össur Haraldsson og…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er langt fyrir aldur fram, Gísli Ölver Sigurðsson, góður og gegn Haukamaður. Gísli fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1969. Hann æfði og spilaði handbolta í yngri flokkum Hauka og í meistaraflokki félagsins um árabil.  Knattspyrnufélagið Haukar sendir fjölskyldu Gísla innilegar samúðarkveðjur.

  • Rakel Oddný framlengir

    Handknattleiksdeild Hauka og Rakel Oddný Guðmundsdóttir hafa framlengt samning sín á milli til næstu þriggja ára. Rakel Oddný sem er 20 ára kemur úr sterkum 2004 árgangi Hauka sem vann til fjölda verðlauna í yngri flokkum. Rakel Oddný spilaði sem vinstri skytta í yngri flokkum en hefur verið að færa sig yfir í vinstra hornið…

  • Jakob framlengir

    Jakob Aronsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka til næstu tveggja ára. Jakob sem er 22 ára er uppalinn Haukastrákur kom fyrst inn í meistaraflokk félagins tímabilið 2020-2021 og á hann leiki fyrir yngri landslið Íslands. Næstu 2 tímabil eftir það var Jakob mikið að klíma við meiðsli og veikindi sem höfðu áhrif á…

  • Berglind framlengir

    Berglind Benediktsdóttir hefur framlengt samning sinn við Hauka til næstu tveggja ára. Berglind sem er 25 ára hefur verið í Haukum síðan 2019 og verið mikilvægur hluti af Haukaliðinu síðan þá. Berglind getur leyst allar stöður fyrir utan ásamt því að vera góður varnarmaður og nýtist því Haukaliðinu vel á báðum endum vallarins. Það er…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er góður og gegn Haukamaður, Ragnar Árnason. Hann var einn af tryggustu stuðningsmönnum handboltans, haukur í horni, mætti á flesta leiki glaður og hress. Skákmaður var hann snjall, formaður skákdeildar Hauka 2014 og stjórnarmaður til margra ára. Félagið sendir fjölskyldu Ragnars innilegar samúðarkveðjur.

  • Lokahóf handbolta eldri

    Lokahóf meistaraflokka handboltans fór fram á dögunum þar sem lokum vetrar var fagnað. Valdi, Ægir og Halli töfruðu fram dýrindis grillveislu sem vakti mikla lukku og voru veitt verðlaun til handa þeim sem þóttu skara framúr. Veislustjórn var í höndum Ingimars Haraldssonar sem þótti standa sig með stakri prýði.      Meistaraflokkur karla: Bestur: Guðmundur…