Fréttir

fréttir

  • Andlátsfrétt

    Þau sorglegu tíðindi bárust á gamlársdag að góður starfsmaður Hauka til áratuga, Bjarni Hafsteinn Geirsson, hafi látist eftir skammvinn veikindi. Haddi Geirs, eins og hann var ævinlega kallaður, markaði djúp spor í sögu okkar Haukanna. Bjarni Hafsteinn var á unga aldri góður handknattleiksmaður, hann sat um tíma í stjórn Knattspyrnufélagsins Hauka og gengdi þar lengi…

  • Fyrsti leikur ársins!

    Fyrsti leikur ársins hjá Haukastelpum er spennandi útileikur á móti Stjörnunni í Heklu höllinni. Leikurinn verður einnig í beinni útsendingu á Handboltapassanum. Haukastelpur sitja nú í 3. sæti deildarinnar með 12 stig, og þær munu án efa gefa allt í leikinn til að halda sér í toppbaráttunni. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta á…

  • Viðurkenningarhátíð Hauka á gamlársdag 2024

    Um áramót héldu Haukar sína árlegu viðurkenningarhátíð þar sem við veitum okkar góða íþróttafólki viðurkenningar og tilnefndum einstaklinga í kjöri um íþróttakonu Hauka, íþróttakarls Hauka og þjálfara Hauka árið 2024. Viðurkenningarhátíðin var vel sótt og margir fögnuðu góðum árangri á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikskona, var kjörin íþróttakona Hauka, Gunnlaugur Sigurðsson, karate, var kjörinn…

  • Elín Klara kjörin íþróttakona Hafnarfjarðar 2024

    Á viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðabæjar sem haldin var þann 27. desember sl. voru afhentar viðurkenningar til íþróttafólks sem þótti standi sig einstaklega vel á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, var valin íþróttakona Hafnarfjarðar í annað sinn og íþróttakarl Hafnarfjarðar var valinn Daníel Ingi Egilsson.  Elín Klara hefur sýnt að hún er ein besta handknattleikskona landsins. Þá voru þau…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er Jón Kr. Jóhannesson, trésmíðameistari. Jón Kr., eins og hann var gjarnan nefndur, var góður og gegn Haukamaður sem unni félagi sínu og var ætíð umhugað um hag þess. Jón Kr. var valinn til trúnaðarstarfa hjá Knattspyrnufélaginu Haukum, sat þar m.a. í varastjórn félagsins og var lengi formaður Öldungaráðs. Jón Kr. var einstaklega nákvæmur…

  • Viðurkenningahátíð Hauka 2024

              Venju samkvæmt heiðra Haukar sitt besta íþróttafólk á viðurkenningahátíð sem haldin verður í íþróttasal í hádeginu á Gamlársdag. Eftirtalin hafa verið tilnefnd: Íþróttakona Hauka 2024 Hildur Aðalsteinsdóttir – skokkhópur Áróra Eyberg Valdimarsdóttir – karate Elín Klara Þorkelsdóttir – Handbolti Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir – fótbolti Þóra Kristín Jónsdóttir – körfubolti…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er góður og gegn Haukafélagi, Sigþór Kristinsson, eftir stutt veikindi. Sigþór var um tíma formaður körfuknattleiksdeildar Hauka og lagði margt gott til félagsins á undanförnum árum. Þá var það Sigþóri mikið gleðiefni að fylgjast með dætrum sínum, sem báðar leika knattspyrnu með meistarflokki Hauka, þegar mfl. Hauka varð deildarmeistari á liðinni leiktíð. Við minnumst…

  • Skötuveisla á Þorláksmessu

    Við minnum á hina árlegu skötuveislu sem haldin verður að venju hér í hátíðarsalnum að Ásvöllum á Þorláksmessu. Boðið verður upp á skötu og saltfisk ásamt meðlæti í föstu og fljótandi formi. Veislan hefst kl. 11:30 og skráning er í síma 525-8700 eða á magnus@haukar.is. Einnig er hægt að skrá sig í afgreiðslunni á Ásvöllum….

  • Tristan og Katrín Íslandsmeistarar!

    Íslandsmót Ungmenna u8-u16, Heimkaupsmótið, fór fram í dag í Miðgarði, Garðabæ Alls tóku 8 krakkar frá Haukum þátt. Allir krakkarnir stóðu sig frábærlega og voru Haukum og Hafnarfirði til sóma. Haukar eignuðust tvo Íslandsmeistara. Katrín Ósk Tómasdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna í u10 flokki og Tristan Nash Openia gerði sér lítið fyrir og vann u14 flokkinn….