Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • Skákæfing 2. mars

    Fín mæting þrátt fyrir að nokkrir af okkar virkustu skákmönnum væru uppteknir við að gera góða hluti á atskákmóti Hróksins. Tefldar voru 2 sinnum 11 umferðir allir við alla. 1. Heimir Ásgeirsson 20,5 af 22 2. Þorvarður Ólafsson 19,5 3. Stefán Pétursson 15 4. Sverrir Þorgeirsson 14,5 5. Ingi Traustason 13 6. Ragnar Árnason 12…

  • Haukamenn að gera það gott!

    Nokkrir meðlimir í Skákdeild Hauka tómu þátt í minningarmótinu um Jón Þorsteinsson og stóðu sig vel. Þetta voru þeir Stefán Freyr Guðmundsson sem fékk 11.5 v. og lenti í 10-14 sæti í heildina og vann fyrstu verðlaun í flokki 1901-2200 stig. Jón Magnússon sem fékk 9 vininga og vann flokk undir 1600 stigum. Frábært hjá…

  • Skákæfing 24. Febrúar

    Góð mæting var að venju á æfingu. Sextán mættu og tefldu allir við alla. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. Heimir Ásgeirsson 14 af 15 2. Guðmundur Guðmundsson 13 3. Þorvarður Ólafsson 12,5 4. Jón Magnússon 12 5. Auðbergur Magnússon 11 6. Stefán Pétursson 9,5 7. Ingi Traustason 9 8. Grímur Ársælsson 8 9. Sverrir Þorgeirsson 7,5…

  • Sjötta umferð Hellismótsins.

    Sjötta umferð Hellismótsins var haldin í gær, mánudag, í húsakynnum Hellis. Fyrir umferðina var andrúmsloftið rafmagnað, spennan var það mikil. Mótið er opið upp á gátt og eru fleiri en tveir að bítast um sigurinn í mótinu. En snúum okkur að Haukamönnunum. Fyrstan ber að nefna Stefán Frey Guðmundsson. Hann stýrði svörtu mönnunum gegn Halldóri…

  • Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2004

    Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2004. Atskákmeistari Hafnarfjarðar er Heimir Ásgeirsson eftir bráðabana við Stefán Frey Guðmundsson. Heimir og Stefán urðu jafnir með 6 vinninga og þurfti 3 hraðskákir til að skera úr um hvor yrði Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2004. Tefldar voru 7 umferðir Monrad og varð niðurröðun efstu mann á þessa leið: 1-2. Heimir Ásgeirsson 6v. 1-2. Stefán…

  • Fimmta umferð Hellismótsins.

    Eftir fimmtu umferð eru línurnar farnar að skýrast í Meistaramóti Hellis. Sigurður Daði Sigfússon, Björn Þorfinnsson og Davíð Kjartansson eru efstir og jafnir með fjóra vinninga. Haukamönnum gekk ekki vel í gær. Stefán Freyr Guðmundssonstýrði hvítu mönnunum á móti Davíð Kjartanssyni. Stefán Freyr fórnaði skiptamun snemma í skákinni. Davíð náði hinsvegar á undraverðan hátt að…

  • Skákæfing 17. Febrúar

    Góð mæting hefur verið á æfingar í vetur. Yfirleitt í kringum 15-20 manns á hverri æfingu. Þess vegna hefur verið teflt eftir Monrad kerfinu á síðustu æfingum og hefur það reynst vel. Nú voru tefldar 8 umferðir og urðu úrslit eftirfarandi: 1. Heimir Ásgeirsson 13,5 af 16 2. Stefán Freyr Guðmundsson 13 3. Þorvarður Fannar…

  • 4. umferð Meistaramót Hellis

    Fjórða umferð Meistaramóts Hellis var tefld í gær mánudag í húsakynnum Hellis í mjóddinni. Jafntefli varð raunin á efstu tveim borðunum og eru nú sjö sterkir skákmenn jafnir í fyrsta sæti. En svo við snúum okkur að haukamönnunum í mótinu. Sannkallaður „Derby“-slagur var á þriðja borði þar sem FH-ingarnir Sveinn Arnarsson(1490) hafði hvítt gegn Stefáni…

  • Meistaramót Hellis

    Nú er lokið þremur umferðum af sjö í Meistaramóti Hellis. Haukamennirnir þrír, þeir Stefán Freyr, Ingi Tandri og Sveinn, eru allir með tvo vinninga. Stefán Freyr lagði Jóhann Helga(TG) í skemmtilegum skandinava þar sem Jóhann Helgi lenti í erfiðu tímahraki. Ingi Tandri vann Margréti Jónu Gestsdóttur nær örugglega og Sveinn knésetti Halldór kára Sigurðsson í…

  • Meistaramót Hellis

    Þrír vaskir skákmenn úr skákdeild Hauka taka nú þátt í meistaramóti Hellis. Þeir heita Ingi Tandri Traustason(1495), Stefán Freyr Guðmundsson(1920) og Sveinn Arnarsson(1490). Fyrsta umferð hófst í gær, mánudagskvöld og urðu úrslit eftir bókinni. Stefán Freyr lagði Elsu Maríu Þorfinnsdóttur í stuttri skák, Ingi Tandri knésetti Halldór Gunnar Haraldsson, sem stundum hefur verið kallaður gestur…