Tengill.
Ég set hérna inn tengil fyrir hinar ýmsu upplýsingar um skákina, t.d. skábyrjanir, sem ég fann á netinu: www.eudesign.com/chessops/ (ch-group.htm) bætist við til að fara beint í byrjanir.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr skákinni
Ég set hérna inn tengil fyrir hinar ýmsu upplýsingar um skákina, t.d. skábyrjanir, sem ég fann á netinu: www.eudesign.com/chessops/ (ch-group.htm) bætist við til að fara beint í byrjanir.
5 félagar í Skákdeild Hauka tóku þátt í MP móti Taflfélags Reykjavíkur. Þetta voru þeir Þorvarður Fannar Ólafsson og Stefán Freyr Guðmundsson í B-flokki og Sveinn Arnarson, Ingi Tandri Traustason og Svanberg Már Pálsson í c flokki. Þorvarður lenti í 4. sæti með 5 vinninga og Stefán í því 8. með 3 vininga. Í c-flokki…
Athugið að skákæfingin á þriðjudaginn verður uppi á annari hæðinni (þar sem að Skákþing Hafnarfjarðar var haldið). Æfingin hefst kl. 1930.
Hróknum spáð sigri í Flugfélagsdeildinni Skákfélaginu Hróknum var spáð yfirburðarsigri í spá viðstaddra þegar dregið var um töfluröð Íslandsmót skákfélaga í kvöld. Hrókurinn fékk fullt hús, þ.e. allir sem spáðu töldu að Hrókurinn myndi sigra. Helli var spáð 2. sæti og TR því þriðja. B-sveit SA var spáð falli. C-sveit Hróksins var spáð sigri í…
Sveit Taflfélags Vestmannaeyja vann sigur á b-sveit Skákdeildar Haukar í 1. umferð (16 liða úrslitum) Bikarkeppni TG. Lokatölur urðu 10-2 en staðan í hálfleik var 6-0. Hellismenn lögðu hins vegar a-sveit Hauka að velli 9-3 en staðan í hálfleik 4½-1½. Báðar viðureignirnar fóru fram á Ásvöllum á fimmtudagskvöldið. Einstaklingsúrslit urðu sem hér segir: Skákdeild Hauka…
Skákdeild Hauka varð í öðru sæti í Íslandsmótinu í hraðskák. Íslandsmeistarar Hróksins unnu sigur á Skákdeild Hróka í úrslitum hraðskákkeppni taflfélaga en lokatölur urðu 55½-16½ en staðan í hálfleik var 27-9. Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson stóðu sig best Hróksverkja en Ásgeir P. Ásbjörnsson best Haukamanna. Hróksmenn unnu 6-0 í fyrstu umferð en töpuðu reyndar…
Ég læt hér fylgja með umfjöllun um viðureignina sem er á skak.is Úrslitaviðureign Hauka og Hróksins Fjórðudeildarmeistarar Skákdeildar Hauka og Íslandsmeistarar Hróksins mætast í úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga þriðjudaginn 7. september. Viðureignin fer fram á heimavelli Hauka á Ásvöllum og hefst kl. 20:00. Það er Taflfélagið Hellir sem stendur fyrir mótshaldinu og er þetta í níunda…
Skákdeild Hauka hefur fengið liðstyrk. Þetta eru Alþjóðlegi meistarinn Björn Ahlander (2393) og hinn íslenskættaði Reynir Helgason (2336). Skákdeild Hauka býður þessa heiðursmenn velkomna í Hauka.
Þá er loksins komið að því að Skákdeild Hauka opnar vef. Það tekur nokkrun tíma að koma honum í það horf sem að hann á að vera í. Hér verður ýmistlegt til fróðleiks og skemmtunar. Fréttir af félögunum og ýmislegt annað. Þeir sem að hafa áhuga á að setja inn fréttir eða annað geta haft…