Deildarkeppnin í skák!
Þeir félagar sem að hafa áhuga á að taka þátt í Íslandsmóti Skákfélaga helgina 7-9 október næstkomandi, vinsamlegast hafið samband við Inga (s:695-0779) eða Aua (s:821-1963) eða í netfangið aui@simnet.is
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr skákinni
Þeir félagar sem að hafa áhuga á að taka þátt í Íslandsmóti Skákfélaga helgina 7-9 október næstkomandi, vinsamlegast hafið samband við Inga (s:695-0779) eða Aua (s:821-1963) eða í netfangið aui@simnet.is
Sverrir Þorgeirsson gerði sér lítið fyrir og hafnaði í öðru sæti á nokkuð sterku hraðskákmóti Garðabæjar, sem fram fór í gærkveldi. Fjórir Haukamenn tóku þátt í mótinu. Sverrir hefur jafnt og þétt verið að þokast nær toppmönnunum á Haukaæfingunum og er það aðeins tímaspursmál hvenær hann fer að vinna æfingarnar reglulega. Við látum hér frásögn…
Mér datt í hug að koma með smá nýjung hér inn á síðuna. það væri gaman ef við gætum deilt með okkur skemmtilegum skáksögum sem menn þekkja, eða hafa upplifað á sínum skákferli. Ég vil hvetja alla þá sem hafa frá einhverjum skemmtilegum skáksögum að segja að senda mér mail á th_fannar@hotmail.com Ég ætti nú…
Góð mæting var á æfinguna á þriðjudaginn, en alls voru þátttakendur 18. Svo fór að lokum að Þorvarður vann með 15 v. Af 17, eftir hörkubaráttu við Árna sem sýndi loks hvað í honum býr eftir arfaslakt mót í Garðabænum. Mikið var um óvænt úrslit, t.d. gerðist Kristján Ari formannabani og vann bæði Auðberg og…
GM Stellan Brynell (2484)hefur gengið til liðs við Hauka. Hann er vinur Björn Ahlander. Velkominn Stellan.
Ólafur B. Þórsson (2220) hefur gengið til liðs við Skákdeild Hauka. Við bjóðum Ólaf hjartanlega velkominn.
10 manns mættu á skákæfinguna í fyrrakvöld. Þetta var ágætis mæting í ljósi þess að fjórir af virkustu skákmönnum Hauka voru að tefla á sama tíma í skákþingi Garðabæjar sem nú stendur yfir. Þetta var gríðarlega jöfn og spennandi æfing, en tefld var tvöföld umferð. Daníel tók strax forystuna og leiddi mótið allt fram í…
Á síðstu æfingu var tekið létt æfingamót þar sem Jón Hákon Richter sigraði með 6 vinningum af 7 mögulegum. Annars var röðin eftirfarandi: 1. Jón Hákon Richter 6 v. 2. Hans Adolf Linnet 5 v. (12 stig) 3. Agnes Linnet 5 v. (11 stig) 4. Arnór Ingi Björnsson 4 v. (var efstur eftir 4 umf….
5 sterkir liðsmenn hafa gengið til liðs við Hauka núna síðustu daga. Þetta eru þeir Elvar Guðmundsson 2360, Alexander Shabalov, 2608, Aloyzas Kveynis, 2531, Vidmantas Malisauskas, og Johan Ahlander. Skákdeild Hauka býður þá velkomna í félagið.
Fjórir vaskir Haukamenn tóku þátt í Íslandsmótinu í atskák, sem fram fór um síðustu helgi. Þátttakendur voru 48 og voru tefldar 2 atskákir við sama andstæðing, útsláttarfyrirkomulag. Ef jafnt var eftir atskákirnar var gripið til bráðabana, þar sem umhugsunartíminn var styttur niður í 10 mín. Haukamenn stóðu sig með mikilli prýði á mótinu og þurfti…