Það verður sannkallaður nágrannaslagur í N1-deild karla í handknattleik á laugardaginn þegar Hafnarfjarðarliðin, Haukar og FH mætast í DB Schenker-höllinni, að Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 15:00. Hafnarfjarðarliðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar, Haukar í því efsta með 25 stig en FH í 2.sæti með 17 stig. Liðin mættust fyrstu umferðinni 10. nóvember á heimavelli […]